× Þessi auglýsing er útrunnin

Pípari - viltu komast hinu megin við mælinn?

Við leitum að úrræðagóðum iðnaðarmanni í hóp öflugra fagmanna til að sinna veitukerfum okkar á höfuðborgarsvæðinu.

Starfs- og ábyrgðarsvið

  • Uppbygging, rekstur og viðhald í dreifikerfum vatns- og hitaveitu Veitna
  • Fjölbreytt verkefni bæði inni og úti við nýlagnir, viðgerðir og tengingar við húskerfi

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveinspróf í pípulögnum
  • Úrræðagóð/ur
  • Lipurð í samskiptum
  • Rík öryggisvitund

Í boði eru fjölbreytt verkefni í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Vinnutíminn er frá klukkan 08:20-16:15. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið. 

Hjá Veitum er frábær starfsandi, mikil ánægja með stjórnendur og allur aðbúnaður fyrsta flokks. Við leggjum mikla áherslu á öryggi og velferð, jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi.  

Við tökum á móti umsóknum á www.veitur.is. Frekari aðstoð veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@veitur.is.

Umsóknarfrestur  er til og með 27.febrúar

Deila starfi Senda póst  Messenger

Auglýsandi

Veitur

Umsóknarfrestur til

27. febrúar

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar