TÆKNIMENN Í VERKEFNASTJÓRNUN
Vegna fjölbreyttra verkefna óska THG arkitektar ehf. eftir að ráða tæknimenn til starfa við verkefnastjórnun og fjölbreytta ráðgjafavinnu. Hjá THG arkitektum starfa nú 30 arkitektar og ráðgjafar á sviði arkitektúrs og verkefnastjórnunar. Verkefni fyrirtækisins eru fjölbreytt hönnunar- og ráðgjafastörf fyrir einstaklinga, fasteignafélög, sjálfseignarstofnanir og opinbera aðila.
Helstu verkefni tæknimanna
- Verkefnastjórn framkvæmda
- Eftirlit með framkvæmdum
- Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana
- Verklýsingar og útboðsgögn
- Rýni séruppdrátta
- Ýmiskonar önnur ráðgjöf til viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Byggingaverkfræði, byggingatæknifræði eða byggingafræðimenntun
- Iðnmenntun er kostur
- Starfsreynsla á ofangreindum sviðum er kostur.
Æskilegt er að umsækjendur séu hugmyndaríkir, hafi frumkvæði og metnað til að takast á við krefjandi verkefni, einir eða í samvinnu við aðra, jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á öllum helstu forritum sem notuð eru við verkefnastjórnun og hönnun.
Umsóknum fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Öllum fyrirspurnum verður svarað.
Vinsamlegast sendið umsóknir til ella@thg.is fyrir 13.júlí 2018, eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.