× Þessi auglýsing er útrunnin

Marbella Spáni. Viltu flytja í sólina?

Viltu flytjast til Marbella Spáni og starfa fyrir Íslenskt fyrirtæki í lifandi og skemmtilegu umhverfi?

Leitum eftir kraftmiklum einstakling sem hefur frumkvæði og getur starfað sjálfstætt. Starfið felst m.a. í að aðstoða viðskiptavini við val á nýjum bíl  í gegnum síma og net. Islandus hefur um árabil verið einn helsti innflytjandi bíla frá USA og Evrópu og eitt fremsta fyrirtæki landsins í rafbílum.

Viðskiptavinir okkar hafa yfirleitt samband í gegnum netið eða síma. Við aðstoðum viðskiptavininn í gegnum síma við að skilgreina draumabílinn og setja í gang Spotprís pöntun til að finna rétta bílinn erlendis sem Islandus síðan sér um að kaupa og flytja heim.  Sjá nánar www.islandus.is

Við kappkostum að veita 100% góða þjónustu og það krefst stöðugrar eftirfylgni í síma og netkerfi, samskipti við viðskiptavini, söluaðila og verktaka í fleiri löndum sem sjá um sölu, innkaup, flutninga, skoðanir og Evrópuvottun bíla. Þá þarf reglubundið að sinna ýmisskonar tilfallandi skjalavinnslu og utanumhaldi um viðskiptin.

Leitað er eftir frískum einstakling helst með reynslu í sölu- og skrifstofustörfum sem búsettur er á Costa del Sol svæðinu á Spáni, eða tilbúin til að flytjast þangað til starfa. Mikið framboð er af lausum íbúðum á svæðinu á hagstæðum verðum og verður aðstoð veitt við að finna hentugt húsnæði. Flug til og frá Íslandi eru um Malaga flugvöll sem er orðinn ein stærsta flughöfn Evrópu en þaðan er á sumrin flogið beint til Íslands og á veturnar t.d. um London, Kaupmannahöfn eða Oslo.

Við leitum eftir:

  • Dugmiklum einstakling sem getur tekið að sér sjálfstæð verkefni
  • Góð tölvukunnátta nauðsynleg, internet og almenn skrifstofustörf
  • Tungumál:
    • Íslenska algert skilyrði, 100% talað og ritað mál
    • Enska algert skilyrði, 100% talað og ritað mál
    • Þýska hjálpleg
    • Sænska hjálpleg
  • Búseta Marbella Spáni eða tilbúin að flytjast þangað

Við bjóðum:

  • Spennandi tækifæri á frábærum stað í Suður Evrópu
  • Góða vinnuaðstöðu
  • Launakjör sem eru með því besta sem finnst í Marbella Spáni
  • Aðstoðum við að finna íbúð á svæðinu ef þess er óskað

Aðrar upplýsingar

Marbella á Spáni er einn vinsælasti ferðamannastaður Evrópu og þar er finna frábærar sólarstrandir, skíðasvæði í 2ja tíma fjarlægð, næturlíf og veitingastaði í þúsundatali. Puerto Banus er í Marbella sem er þekkt smábátahöfn en þangað venja komur sínar m.a. heimsþekktar kvikmyndastjörnur og viðskiptajöfrar allstaðar frá í heiminum. Í Marbella eru leikhús, listagallerý og mikið af ýmsum tónleikum með heimsþekktum listamönnum, uppákomur og hátíðir allt árið um kring þar á meðal alþjóðlegt kvikmyndafestival.  Sjá myndband

Starfsauglýsingar á Islandus.com

Auglýsandi

Islandus Europe ehf

Umsóknarfrestur til

18. september

Tekið við umsóknum á

Flokkar