Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík auglýsir eftir akademískum starfsmanni á sviði stýritækni, vélmenna, hátækni (mekatróník) eða sambærilegu. Ráðið verður í stöðu lektors, dósents eða prófessors og verður starfsheitið ákvarðað út frá formlegu hæfismati.
HÆFNISKRÖFUR
- Doktorspróf í verkfræði með sérhæfingu í stýritækni eða vélmennum.
- Færni og reynsla af rannsóknarstörfum og öflun rannsóknastyrkja.
- Skýr framtíðarsýn í rannsóknum á sviðinu.
- Reynsla af kennslu og metnaður í þróun kennsluaðferða.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
STARFSSVIÐ:
- Rannsóknir á sviði stýritækni, vélmenna (robotics), hátækni (mekatróník) eða tengdum greinum.
- Kennsla í grunn- og framhaldsnámi í námskeiðum á borð við aflfræði, stýritækni og stýrikerfi, og mekatróník.
- Leiðsögn nemenda í grunn- og framhaldsnámi.
- Þátttaka í stjórnsýslu sviðsins þar með talið þróun námsframboðs deildarinnar og uppbygging tilraunastofa til kennslu.
Tækni- og verkfræðideild býður upp á nám á grunn- og framhaldsnámsstigi í meðal annarsrafmagnsverkfræði, vélaverkfræði, hátækniverkfræði, heilbrigðisverkfræði, byggingarverkfræði,fjármálaverkfræði, rekstrarverkfræði og orkuverkfræði.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Sævarsdóttir, forseti tækni- og verkfræðideildar,gudrunsa@ru.is, og Sigrún Þorgeirsdóttir, skrifstofustjóri deildarinnar, sigrunth@ru.is. Umsóknum ásamt starfsferilskrá, afriti af viðeigandi prófskírteinum, yfirliti yfir fræðastörf og reynslu af kennslu, afritum af helsta birta efni og meðmælum, skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík,hér að neðan, fyrir 15. júlí 2018.Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- ogverkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórumdeildum og starfa um 250 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara