Leitað er að öflugum einstaklingi í krefjandi stjórnunarstarf, þar sem frumkvæði, samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð fá að njóta sín. Fjármálastjóri tekur virkan þátt í stjórnun og stefnumótun. Í boði er krefjandi en jafnframt spennandi starf.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Dagleg umsjón með fjármálum fyrirtækisins
- Stjórnendaupplýsingar til framkvæmdastjóra og stjórnar fyrirtækisins
- Sjóðsstýring og ávöxtun fjármuna
- Líkana-, áætlana- og skýrslugerðir
- Umsjón með skilum á gögnum til endurskoðanda og opinberra aðila
- Samskipti við fjármálastofnanir
- Starfsmannamál
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun, framhaldsmenntun á sviði fjármála er kostur
- Reynsla af rekstrarumhverfi smásölu- og heildsölu fyrirtækja
- Reynsla af stjórnunarstörfum
- Reynsla af bókhaldsstörfum
- Góð tölvukunnátta (Excel, Pivot, Dynamics Nav 2013) þekking á fleiri bókhaldskerfum mikill kostur
- Öguð og skipulögð vinnubrögð byggð á metnaði og árangri
- Framúrskarandi samskiptafærni og þjónustulund
- Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði
Aðrar upplýsingar
Greitt er sérhæfð greiðslumiðlun sem býður seljendum vöru og þjónustu á Íslandi veltuaukandi lausnir og bestu tækni við móttöku á greiðslum.
Fyrirtækið vinnur að því markmiði að einfalda og auka viðskipti á netinu. Meðal viðskiptavina Greitt eru smásölufyrirtæki, netverslanir, heildverslanir, ferðaþjónustufyrirtæki og önnur þjónustufyrirtæki
Umsóknarfrestur til
31. janúar