× Þessi auglýsing er útrunnin

Hjúkrunardeildarstjóri , Hjúkrunarheimilið Sundabúð, Vopnafirði

Hjúkrunarheimilið Sundabúð óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra  til afleysinga í eitt ár. Um er að ræða 80- 100 % stöðu sem veitist  frá 1.ágúst eða eftir samkomulagi.

Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og ber ábyrgð á að starfað sé samkvæmt markmiðum heimilisins og lögum og reglugerðum og tekur virkan þátt í breytingar- og þróunarstarfi sem fer fram á deildinni.

Hjúkrunarheimilið Sundabúð er með 11 hjúkrunarými, eitt sjúkra og endurhæfingarrýmii og  eitt dagvistarrými.Samkvæmt samningi við Velferðarráðnuneytið er heimahjúkrun í sveitarfélaginu sinnt af starfsfólki hjúkrunardeildarinnar. Félagslegri heimaþjónustu verður einnig stjórnar frá deildinni frá og með 1 .maí.

Umsækjandi skal hafa fullgilt íslenskt hjúkrunarleyfi , lögð er áhersla á samviskusemi og góða samskiptahæfileika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Emma Tryggvadóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 470 1240 og emma@vopnafjardarhreppur.is

Umsóknarfrestur er til 15.maí  næstkomandi

Auglýsandi

Hjúkrunarheimilið Sundabúð

Umsóknarfrestur til

20. maí

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar