× Þessi auglýsing er útrunnin

Söluráðgjafi innréttinga

KVIK Reykjavík leitar að árangursdrifnum söluráðgjafa og eldhúshönnuði.Hjá Kvik er markmiðið skýrt: Að selja nútímaleg eldhús, bað og fataskápalausnir á viðráðanlegu verði. Vegna aukinna verkefna, vantar okkur núna hörkuduglegan söluráðgjafa og eldhúshönnuð með okkur í lið, sem hefur mikla sköpunarhæfileika, næmt auga fyrir smáatriðum og ríka þjónustulund. Sem eldhúshönnuður hjá Kvik býðst þér markviss sölu- og vöruþjálfun bæði heima og erlendis.

Hversu KVIK þarftu að vera? Við gerum kröfu um að þú hafir reynslu af sölu innréttinga eða sambærilegra vara og að þú sért árangursdrifin(n), hafir brennandi áhuga á sölumennsku og sért sannfærandi. Þú þarft að hafa góða tölvukunnáttu ásamt hæfni í mannlegum samskiptum. Þú ert dugleg(ur) til að skynja óskir viðskipta-vinarins og getur með sköpunarhæfileikum uppfyllt drauma hans með nýjum innréttingum og heimilistækjum. Þú ert búin(n) mikilli orku og vilja til að vinna markvisst að settum markmiðum og ná árangri í starfi.

Sendu umsókn þína sem fyrst á egillin@reykjavik.kvik.dk

Auglýsandi

Rafha ehf

Umsóknarfrestur til

15. júlí

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Söluráðgjöf Hönnun

Landsvæði

Flokkar