Ég óska eftir persónulegum aðstoðarmanni sem hefur áhuga á að aðstoða mig við athafnir daglegs lífs. Aðstoðin fer fram innan heimilis og utan þess. Ég er hreyfihamlaður stúdent við Háskóla Íslands og notast við rafknúinn hjólastól. Ég er búsettur í Reykjavík.
Persónulegur aðstoðarmaður þarf að vera áreiðanlegur, reglusamur, reyklaus, heiðarlegur, stundvís og hafa ríka þjónustulund. Sveigjanleiki í starfi er nauðsynlegur.
Æskilegur aldur er 25-45 ára en ekki skilyrði.
Ekki er gerð krafa um að umsækjendur hafi reynslu af því að vinna með fötluðu fólki.
Óskað er eftir umsækjendum sem geta unnið dag- og kvöldvinnu bæði á virkum dögum og um helgar.
Áhugasamir sendið póst á netfang eie1@hi.is
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og listi yfir meðmælendur.
Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2014.
Persónulegur aðstoðarmaður óskast
18. ágúst
aðstoðarmaður, frekari liðveisla, félagsleg liðveisla