Starfsmannaleiga á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða til starfa hússtjóra. Viðkomandi verður að geta flutt inn í húsnæði á vegum vinnuveitanda. Þar mun viðkomandi sjá um starfsmannahald, halda röð og reglu, viðhald á húsinu og fleira. Viðkomandi þarf að hafa sterkan karakter og vera laginn í mannlegum samskiptum. Í starfinu felst m.a. samskipti og aðstoð við starfsmenn vinnuveitanda, viðhald og viðgerðir og fleira.
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Laghentur
- Bílpróf
- Gott vald á ensku
- Önnur tungumál kostur
Aðrar upplýsingar
Starfinu fylgir:
- 45 fermetra íbúð í húsnæði á vegum vinnuveitanda.
- Bíll og eldsneyti á vegum vinnuveitanda.
- Farsími og meðfylgjandi kostnaður á vegum vinnuveitanda.
- Fartölva á vegum vinnuveitanda.
- Frítt internet í húsnæði á vegum vinnuveitanda.
Áhugasamir hafið samband á póstfangið work@mennivinnu.is eða í síma 780-4000 eða 419-1111.
Auglýsandi
Menn í vinnu
Umsóknarfrestur til
26. september
Tekið við umsóknum á
Stikkorð
hússtjóri, húsvörður, starfsmannahald, viðhald, laghentur