× Þessi auglýsing er útrunnin

Verkefnastjóri í Opna háskólanum

Opni háskólinn í HR leitar að kraftmiklum einstaklingi í starf verkefnastjóra. Verkefnastjóri ber ábyrgð á þróun, framkvæmd, sölu og eftirfylgni námskeiða Opna háskólans í HR. Verkefnastjóri heyrir undir forstöðumann Opna háskólans í HR og vinnur í teymi með öðrum starfsmönnnum einingarinnar.

STARFSSVIÐ:

  • Þarfagreining og þróun námskeiða í samstarfi við akademískar deildir háskólans og íslenskt atvinnulíf
  • Sala og markaðssetning
  • Skipulagning og framkvæmd námskeiða
  • Samskipti við viðskiptavini og kennara
  • Öflun nýrra viðskiptavina
  • Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd viðburða á vegum Opna háskólans í HR

HÆFNISKRÖFUR:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla úr upplýsingatæknigeiranum er kostur
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Fagmennska og vilji til að veita frábæra þjónustu
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð

Nánari upplýsingar veitir: Ásdís Erla Jónsdóttir (asdisj@ru.is), forstöðumaður Opna háskólans í HR. Áhugasamir geta einnig sent tölvupóst á mannauðssvið HR (mannaudur@ru.is). Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2018. Eingöngu þær umsóknir sem berast í gegnum umsóknarvef eru teknar til greina. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. 

Aðrar upplýsingar

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3600 í fjórum deildum og starfa um 250 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara

Auglýsandi

Háskólinn í Reykjavík

Umsóknarfrestur til

25. nóvember

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar