Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík auglýsir eftir rafmagnsverkfræðingi.
STARFSSVIÐ:
- Kennsla í rafmagnsiðnfræði, rafmagnstæknifræði og grunnnámi í verkfræði
- Mótun kennslu í fögum á rafmagnssviði við Tækni- og verkfræðideild
- Þátttaka í stjórnsýslu deildar og kynningarstarfi
HÆFNISKRÖFUR:
- Meistaragráða í rafmagnsverkfræði eða tengdum fögum
- Sérhæfing á sviði raforku er kostur
- Reynsla af kennslu er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð kunnátta í ensku og íslensku í ræðu og riti
Nánari upplýsingar um starfið veita Ágúst Valfells, forseti tækni- og verkfræðideildar, av@ru.is, og Sigrún Þorgeirsdóttir, skrifstofustjóri deildarinnar, sigrunth@ru.is. Umsóknum ásamt starfsferilskrá, afriti af viðeigandi prófskírteinum, yfirliti yfir starfsreynslu og reynslu af kennslu og tveimur nöfnum á meðmælendum, skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, radningar.hr.is fyrir 15. janúar 2019.
Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Aðrar upplýsingar
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 og starfa um 250 fastir starfsmenn við háskólann, auk fjölda stundakennara.