× Þessi auglýsing er útrunnin

Sölumaður á hjúkrunarvörum

Rekstrarvörur óska eftir að ráða sölumann til starfa. Um er að ræða sölu á hjúkrunar-og þvaglekavörum og almennar hjúkrunarvörur ásamt öðrum tengdum rekstrarvörum. Í boði er starf hjá rótgrónu og traustu fyrirtæki.

Starfið felur í sér heimsóknir,sölu og fræðslu um hjúkrunarvörur. Þeir viðskiptavinir RV , sem viðkomandi starfsmaður mun þjónusta í samstarfi við aðra starfsmenn RV eru hjúkrunarheimili, heilbrigðisstofnanir, heilsugæslustöðvar og annar rekstur tengdur heilbrigðisþjónustu.

Starfinu geta fylgt ferðalög innanlands.

Leitað er að sjúkraliða í starfið eða einstaklingi með aðra heilbrigðismenntun og/eða góða reynslu í heilbrigðisgeiranum.

Viðkomandi þarf að hafa áhuga á mannlegum samskiptum , geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð, vera jákvæð/ur og með ríka þjónustulund. Góða tölvukunnáttu þarf í starfið. Reynsla af sölu og fræðslu er kostur.

Vinnutími er 8:00-16:00 mánudaga til föstudaga.

Leitað er að áhugasömum, ábyrgum og þjónustulunduðum aðila sem getur hafið störf fljótlega.

Rekstrarvörur er reyklaus vinnustaður

Umsjón með ráðningu er í höndum Sigurlaugar Þóru Kristjánsdóttur Mannauðsstjóra Rekstrarvara, umsóknir skulu sendar ásamt ferilskrá og kynningabréfi á sigurlaug@rv.is

Umsóknarfrestur er til 20.2.2019

Auglýsandi

Rekstrarvörur ehf

Umsóknarfrestur til

20. febrúar

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

hjúkrun, sala, sölustarf

Landsvæði

Flokkar