Vefjarannsóknarstofan ehf, Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík (www.vefjarannsokn.is) óskar eftir lífeindafræðingi til starfa. Um dagvinnu er að ræða. Starfshlutfall 80% eða eftir samkomulagi.
Starfið felst í sérhæfðri vinnu við meðhöndlun vefjasýna sem og öðrum almennum störfum á stofunni. Fyrri reynsla af vefjafræði ekki áskilin. Samviskusemi og hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Áhugasamir geta sent umsókn eða fyrirspurnir á netfangið: vigdis.petursdottir@gmail.com
Auglýsandi
Vefjarannsóknarstofan
Umsóknarfrestur til
15. febrúar