× Þessi auglýsing er útrunnin

Aðstoðarskólastjóri í listadeild

 

Aðstoðarskólastjóri í listadeild frá 1. ágúst 2019

Við leitum að fjölhæfum og metnaðarfullum stjórnanda listadeildar Seyðisfjarðarskóla. Listadeild Seyðisfjarðarskóla rekur Tónlistarskóla Seyðisfjarðar, sem er opinn öllum íbúum kaupstaðarins, en listadeild kemur einnig mikið að listgreinakennslu í grunn- og leikskóladeild auk þess sem þar fara fram námskeið utan skóla.

Umsóknarfrestur til og með 31. mars 2019.

Starfssvið

  • Fagleg forysta á sviði listgreinakennslu í nánu samstarfi við skólastjóra og aðra stjórnendur skólans, með áherslu á tónlist en jafnframt aðkomu myndlistar- og sviðslistakennslu í skólastarfi leikskóla- og grunnskóladeildar.
  • Skipulag náms við listadeild út frá námsskrám í nánu samstarfi við skólastjóra.
  • Dagleg starfsemi og rekstrarlegir þættir deildarinnar í nánu samstarfi við skólastjóra.
  • Kennsla á hljóðfæri, tónfræði, tónmennt og/eða kennsla í listgrein við aðrar deildir.
  • Náin samvinna við stjórnendur leik- og grunnskóladeildar um þróun skólahalds í Seyðisfjarðarskóla.
  • Samstarf við heimilin og aðrar mennta- og menningarstofnanir í nærsamfélaginu.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Gerð er krafa um menntun í tónlist og reynslu af tónlistarstarfi.
  • Gerð er krafa um leyfisbréf til kennslu við eitt eða fleiri skólastig í grunn- leik- eða tónskóla og reynslu af kennslu í tónlist, myndlist eða sviðslistum.
  • Metnaður fyrir skapandi skólastarfi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi í skóla æskileg.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun æskileg.
  • Reynsla af eigin listsköpun æskileg.
  • Metnaður fyrir skapandi skólastarfi og umhverfisvænum vinnubrögðum í anda skólastefnu Seyðisfjarðarskóla.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sveigjanleiki, stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð íslenskukunnátta.

 

Karlar og konur eru hvött til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og AFLI eftir atvikum.

Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá skv. lögum.

Gögn um menntun og/eða leyfisbréf og ferilskrá skulu fylgja með umsókn ásamt upplýsingum um meðmælendur.

Upplýsingar um störfin, skólann og annað, veitir skólastjóri í síma 470-2327 eða 7717217, netfang svandis@skolar.sfk.is

Sjá nánar um skólann: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/

Auglýsandi

Seyðisfjarðarkaupstaður

Umsóknarfrestur til

31. mars

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar