Rekstrarvörur óska eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa. Í boði er starf hjá rótgrónu og traustu fyrirtæki.
Starfið felur í sér heimsóknir og sölu á hjúkrunarvörum og skurðstofuvörum ásamt vinnu við útboð hjúkrunar-og skurðstofuvara og fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks á vörum RV. Starfinu geta fylgt ferðalög innanlands.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi með þekkingu á skurðstofuvörum og/eða góða reynslu í heilbrigðisgeiranum.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á mannlegum samskiptum , geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð, vera jákvæð/ur og með ríka þjónustulund.
Vinnutími er sveigjanlegur eftir samkomulagi um er að ræða 50% starf.
Leitað er að áhugasömum, ábyrgum og þjónustulunduðum aðila sem getur hafið störf fljótlega.
Rekstrarvörur er reyklaus vinnustaður
Umsjón með ráðningu er í höndum Sigurlaugar Þóru Kristjánsdóttur Mannauðsstjóra Rekstrarvara, umsóknir skulu sendar ásamt ferilskrá og kynningabréfi á sigurlaug@rv.is
Umsóknarfrestur er til 12.05.2019