× Þessi auglýsing er útrunnin

Aðstoð á tannlæknastofu

Tannlæknastofa óskar eftir aðstoðarmanneskju

 

Lýsing á vinnustað:

Tannlæknastofan Tannheilsa býður upp á alhliða tannlæknaþjónustu fyrir fólk á öllum aldri ásamt sérfræðiþjónustu í lyflækningum munns. Á stofunni ríkir góður andi og við leggjum metnað í að heimsókn til okkar sé ánægjuleg og viðmót sé gott. Stofan er staðsett í Skipholti 33, 105 Reykjavík. Á stofunni starfa tannlæknarnir Stefán Pálmason, Hjördís Ýr Bessadóttir og Sunna María Einarsdóttir

Lýsing á starfi:

Óskað er eftir starfsmanni í langtíma stöðu. 60-80% starf. Getur aukist í 100% síðar.

Starfið felur í sér að aðstoða tannlækna við stól, sótthreinsun og þrif, símsvörun og tímabókanir sjúklinga, vörupantanir og fleira sem viðkemur almennum rekstri tannlæknastofu.

Hæfniskröfur:

Góð almenn tölvukunnátta.

Góð og fagleg þjónustulund.

Gott skipulag.

Sveigjanlegir vinnutímar.

Hvenær störf hefjast: Eftir samkomulagi

Upplýsingar veitir: Stefán Pálmason á netfangið; stefanpalmason@gmail.com

Umsókn ásamt ferilskrá sendist á: stefanpalmason@gmail.com

Auglýsandi

Tannheilsa ehf

Umsóknarfrestur til

25. júní

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Tanntæknir

Landsvæði

Flokkar