Waldorfskólinn í Lækjarbotnum óskar eftir kennurum í hlutastörf:
- stærðfræðikennara á unglingastigi
- tónlistarkennara
Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 2-16 ára barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolfs Steiner. Jöfn áhersla er lögð á verklegt, listrænt og bóklegt nám. Unnið er samkvæmt flatri stjórnun þar sem starfsmannaráð ber ábyrgð á rekstri og innra starfi skólanna.
Í skólunum eru um 100 börn við leik og störf.
Skólinn er staðsettur 10 km austur af Árbæ í fallegum dal með ævintýralegu umhverfi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu eða menntun í Waldorf uppeldisfræðum. Gerðar eru kröfur um að umsækjandi hafi fullt vald á íslenskri tungu.
Umsóknir sendist á gjaldkeri@waldorfskolinn.is
Auglýsandi
Waldorfskólinn Lækjarbotnum
Umsóknarfrestur til
20. júní