Vilt þú bætast í hópinn á notalegu líkamsmeðferðarstofunni okkar?
Við leitum af kraftmiklum, sjálfstæðum, skipulögðum og ábyrgum einstakling til að starfa í móttöku stofunnar.
Um er að ræða fullt starf á virkum dögum frá kl. 9:00-17:00 og mögulega meira á álagstímabilum.
Helstu verkefni:
Móttaka viðskiptavina
Símsvörun
Bókanir viðskiptavina í bókunarkerfi
Svörun viðskiptavina á samfélagsmiðlum
Dagleg þrif og viðhald
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
Góð íslensku kunnátta er skilyrði
Góð ensku kunnátta er skilyrði
Færni í mannlegum samskiptum skilyrði
Almenn tölvukunnátta er skilyrði
Reynsla úr afgreiðslu og/eða móttökustörfum er kostur
Eingöngu kemur til greina ábyrgur, skipulagður og hraustur einstaklingur með mikla þjónustulund.
Ef þig langar að starfa hjá okkur og ert laus strax þá viljum við heyra frá þér.
Sendu okkur helstu upplýsingar ásamt ferilskrá á netfangið: be.our.influencer@gmail.com
Hlökkum til að heyra frá þér.
The House of Beauty
Fákafeni 9
108 Reykjavik