Ferðaþjónustufyrirtækið Fjallsárlón ehf. leitar að öflugum starfsmanni í 30% starf til að sinna markaðsráðgjöf og umsjón ýmissa markaðsmála fyrirtækisins. Fyrirtækið sinnir siglingum um jökullónið Fjallsárlón og veitingarekstri á sama stað, vaxandi fyrirtæki og spennandi áskorun. Viðkomandi getur sinnt starfinu hvar sem er á Íslandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking á sölu- og markaðsmálum í ferðaþjónustu.
- Reynsla af markaðsmálum æskileg.
- Haldgóð tölvukunnátta.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Metnaður í starfi.
Aðrar upplýsingar
Frekari upplýsingar og umsóknir í gegnum netfangið steinthor@fjallsarlon.is
Auglýsandi
Fjallsárlón
Umsóknarfrestur til
7. nóvember
Tekið við umsóknum á
Stikkorð
ferðaþjónusta, markaðsmál, sölumál