Starfssvið:
Ráðgjöf til vinnuveitanda og aðstoða hann með starfsmannahald og umsýslu. Aðstoð við framkvæmd hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf. Einnig önnur verkefni sem kunna að koma upp í lífi vinnuveitanda.
Vinnuveitandi er með hreyfihömlun og hjólastólanotandi.
Menntun og hæfniskröfur:
Góð færni í mannlegum samskiptum, þjónustulund, traust, víðsýni, sveigjanleganleiki í starfi og að unnið sé á forsendum vinnuveitanda.
Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta. Góð færni í notkun og framsetningu gagna á tölvutæku formi, t.d. Word, Excel og Powerpoint. Menntun á sviði fötlunarfræða er kostur en ekki skilyrði.
Aðrar upplýsingar
· Hreint sakavottorð er skilyrði
· Æskilegur aldur er 25-45 ára en ekki skilyrði
· Gerð krafa um að ráðgjafi sé reyklaus
· Sveigjanlegur vinnutími sem hentar vel með annarri vinnu eða námi
· Um er að ræða hlutastarf u.þ.b. 25%
·Um er að ræða tímabundið starf með möguleika á framlengingu og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendið póst á netfang: pa-teymi@simnet.is
Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og listi yfir meðmælendur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember 2019.