Ég er 39 ára gömul kona, sem er bundin við hjólastól og þarfnast aðstoðar við öll dagleg störf.
Óska eftir aðstoðarmanneskju 28 ára eða eldri.
Umsækjandi þarf að vera líkamlega hraust manneskja, reyklaus, með bílpróf og hreint sakavottorð. Hún þarf að eiga auðvelt með að taka leiðsögn.
Í starfi sem þessu er traust, virðing, jákvæðni, þolinmæði og stundvísi mikilvægir kostir.
Ekki er gerð krafa um reynslu af störfum með fötluðu fólki.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf fatlaðra einstaklinga og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA.
100% starfshutfall
Áhugasamir endilega sendið mér ferilskrá ásamt helstu upplýsingum.
(Only Icelandic speaking).
Auglýsandi
Heiða slf