GEGNUM GLERIÐ / DUXIANA er sérverslun með húsgögn, gjafavörur, innréttingar og rúm í sérflokki.
Við leitum að fagurkera með reynslu af sölumennsku, er skipulagður, sjálfstæður og metnaðarfullur í vinnubrögðum og hæfni í mannlegum samskiptum til starfa í verslun okkar.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Sala og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini.
Framsetning, áfyllingar og frágangur í verslun.
Þróun og viðhald vefverslunar og samskiptamiðla.
Tiltekt pantana í vefverslun.
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur.
Hæfniskröfur:
Reynsla af sölustörfum og framúrskarandi þjónustulund.
Góð almenn tölvukunnátta og þekking/reynsla á Photoshop og samfélagsmiðlum.
Áhugi og menntun í hönnun er kostur.