Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar óskar eftir tónfræðikennara í 40-50% starfshlutfall og forskólakennara í afleysingu fyrir skólaárið 2022-23.
Forskólakennslan fer fram kl. 14-15:30 á þriðjudögum og föstudögum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tónlistarkennaramenntun, tónlistarmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Færni í mannlegum samskiptum
Áhugi og metnaður fyrir samstarfi innan skólans
Tónfræðikennari þarf að geta kennt alla þætti námsefnis á grunn- og miðstigi, - tónfræði, tónheyrn, hlustun og greiningu, auk þess að geta leitt skapandi starf og innleitt notkun tölvutækni og/eða smáforrita í tónfræðináminu
Nánari upplýsingar veitir Júlíana Rún Indriðadóttir skólastjóri í síma 8486057
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið julianaindrida@gmail.com