Styrktarfélag klúbbsins Geysis

Verkefnastjórar

Klúbburinn Geysir óskar eftir tveimur verkefnastjórum í fullt framtíðarstarf.

Klúbburinn Geysir er vinnustaður fólks sem átt hefur við geðræn veikindi og áskoranir.

Klúbburinn er rekinn samkvæmt alþjóðlegri hugmyndafræði Clubhouse International.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu klúbbsins á www.kgeysir.is og á www.clubhouse-intl.org.

Við leitum að starfsmanni sem er:

• Lífsglaður, jákvæður og félagslyndur

• Sveigjanlegur og útsjónasamur

• Tekur frumkvæði, er frjór í hugsun og drífandi

• Tilbúinn til að læra nýja hluti

• Á auðvelt með að vinna með fólki

Störfin eru í skrifstofu atvinnu- og menntadeildar og eldhús- og viðhaldsdeildar klúbbsins. Störfin eru mjög fjölbreytt, skemmtileg og gefandi en jafnframt krefjandi.

Starfsmennirnir þurfa að hafa mjög góða kunnáttu í íslensku og ensku. Vald á einu Norðurlandamáli er kostur.

Umsækjendur verða að hafa góða almenna tölvufærni ritvinnslu, excel og powerpoint. Einnig er óskað eftir góðri kunnáttu í notkun samfélagsmiðla; facebook, twitter, snapchat, instagram, mailchimp og notkun fjarfundarbúnaðar.

Starfsmenn hafi bíl til umráða.

Æskilegt er að umsækjaendur geti hafið störf fljótlega.

Frekari upplýsingar má fá hjá Þórunni Ósk Sölvadóttur framkvæmdastjóra Klúbbsins Geysis á tota@kgeysir.is.

Umsóknarfrestur

15.12.2022

Starf nr.: 221012-09

Skráð á vefinn: 12.10.2022

Stöðugildi: 2

Starfshlutfall: 100%

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni