HH Ráðgjöf ehf.
Ráðgjafi
HH Ráðgjöf óskar eftir að ráða úrræðagóðan og metnaðarfullan einstakling í starf ráðgjafa á ráðningar- og mannauðsráðgjafarsvið.
Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og skipulagður í vinnubrögðum, eiga gott með að starfa í breytilegu umhverfi og vera með framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Móttaka viðskiptavina og umsækjenda
• Úrvinnsla gagna, viðtöl, öflun umsagna og hæfnismat
• Ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini og umsækjendur
• Ýmis verkefni á mannauðssviði
• Aðstoð á námskeiðum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s.á sviði sálfræði, í félagsvísindum, viðskiptafræði eða sambærilegt æskileg
• Menntun/þekking og áhugi á mannauðsstjórnun og mannauðsmálum kostur
• Mjög góð almenn tölvukunnátta s.s. Word og Excel
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
• Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
HH Ráðgjöf er eitt rótgrónasta fyrirtækið á Íslandi á sviði ráðninga og mannauðsmála. Fyrirtækið veitir viðskiptavinum sínum heildarlausnir á sviði ráðninga og alhliða þjónustu og ráðgjöf vegna mannauðsmála.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið: hulda@hhr.is
Umsóknarfrestur
17.12.2022
Starf nr.: 221129-01
Skráð á vefinn: 29.11.2022
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%