× Þessi auglýsing er útrunnin

Forstöðumaður Kirkjubæjarstofu

Kirkjubæjarstofa auglýsir stöðu forstöðumanns lausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur til og með 1. mars 2023. Kirkjubæjarstofa, þekkingarsetur er rannsókna- og fræðasetur á sviði náttúrufars, sögu og menningar. Starfsemi á Kirkjubæjarstofu hefur verið af ýmsu tagi og mörg verkefni verið unnin í nafni stofnunarinnar frá því hún var stofnuð 1997.

Forstöðumaður ber m.a. ábyrgð á:

• öflun styrkja úr samkeppnissjóðum og utanumhald um styrkumsóknir,

• stefnumótun og útfærslu á starfsemi Kirkjubæjarstofu,

• fjármálum og rekstri,

• þróun samstarfsverkefna,

• starfsmannamálum,

• tengslum við innlenda og erlenda aðila.

 

Hæfniskröfur:

• háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi,

• reynsla af stjórnun og stefnumótun,

• frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum,

• leiðtogahæfileikar og góð samskiptahæfni

• gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku

Aðrar upplýsingar

Nánari upplýsingar

Auður Guðbjörnsdóttir, stjórnarformaður
netfang: audur@klaustur.is, sími:  846 2770.

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf auk yfirlits um námsferil og fyrri störf (CV). Umsóknir skulu merktar „Forstöðumaður Kirkjubæjarstofu“ og berast á rafrænu formi.

Launakjör eru samkomulagsatriði.

Umsóknarfrestur er til 1. mars nk.

Umsóknir sendast á ekj@klaustur.is

Auglýsandi

Skaftárhreppur

Umsóknarfrestur til

1. mars

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

forstöðumaður háskólamenntun stjórnun leiðtogi þekkingasetur rannsóknir náttúra saga og menning

Flokkar