Leikskólinn Vinaminni ehf.
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólakennari/leiðbeinandi
Laus er til umsóknar 100% staða leikskólakennara eða leiðbeinanda í leikskólanum Vinaminni Asparfelli 10 111 Reykjavík frá 8. ágúst 2023
.
Leikskólinn Vinaminni er sjálfstæður leikskóli. Unnið er með grunnþætti menntunar eins og segir í aðalnámskrá menntamálaráðuneytisins.
Æskilegar hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að vera þolinmóður, hraustur, heiðarlegur, stundvís, hafa gaman af að starfa með börnum, sjálfstæður í vinnubrögðum og glaðlyndur.
Einnig er mikilvægt að viðkomandi sé jákvæður og hafi góða færni í mannlegum samskiptum og góð íslenskukukunnátta er skilyrði.
Hreint sakavottorð
Reynsla af að starfa í leikskóla er góður kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsækjandi þarf að starfa eftir markmiðum og leiðum leikskólans hvað varðar menntun barnanna í leikskólanum. Einnig er mikilvægt að geta gengið í þau öll þau störf sem þarf að inna af hendi í skólanum.
Leikskólastarfið er skemmtilegt og gefandi starf, komdu og taktu þátt í því frábæra starfi sem unnið er í Vinaminni
Nánari upplýsingar veitir Sólveig Einarsdóttir leikskólastjóri / vinaminni@vinaminni.is
Umsóknarfrestur
30.06.2023
Starf nr.: 230525-05
Skráð á vefinn: 25.05.2023
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%