Vinnumálastofnun
Umsjón með fasteignum
Umsjón með fasteignum
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða öfluga aðila í umsjón með fasteignum umsækjenda um alþjóðlega vernd (UAV). Um tvær stöður er að ræða.
Um er að ræða mjög fjölbreytt og viðamikið starf þar sem reynir á lausnarmiðað og jákvætt hugarfar í samheldnu teymi.
Starfsstöð viðkomandi er í höfuðstöðvum Vinnumálastofnunar á Grensásvegi 9 en fasteignir UAV eru staðsettar víðsvegar um landið, flestar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.
Leitað er eftir einstaklingum sem eiga auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar, sem er: Fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.
Næsti yfirmaður verður deildarstjóri rekstrardeildar en viðkomandi mun vinna undir stjórn teymisstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsjón með viðhaldi fasteigna og sinna léttu viðhaldi.
Reglulegar úttektir á fasteignum og skýrslugerð.
Mat á viðhaldsþörf og leit tilboða.
Kostnaðareftirlit með viðhaldsverkefnum.
Samskipti við þjónustuaðila.
Skipulag vöruflutninga.
Standsetning og lokun fasteigna.
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Iðnmenntun og/eða önnur menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Frumkvæði og metnaður í starfi.
Reynsla af teymisvinnu og góð samskiptahæfni.
Bílpróf.
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
Góð almenn tölvukunnátta.
Áreiðni og sveigjanleiki.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl. Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Hrönn Óskarsdóttir deildarstjóri í rekstrardeild: helga.h.oskarsdottir@vmst.is, sími 515-4800.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur
11.04.2024
Starf nr.: 240325-06
Skráð á vefinn: 25.03.2024
Stöðugildi: 2
Starfshlutfall: 100%