Verkalýðsfélag Snæfellinga
Eftirlitsfulltrúi á Snæfellsnesi
Vinnustaðaeftirlit.
Túlkun kjarasamninga og samskipti við félagsfólk og atvinnurekendur.
Útreikningar launa og ýmis verkefni tengd kjaramálum.
Önnur tilfallandi verkefni.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf. Leitað er að jákvæðum og þjónustulunduðum aðila.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst
Menntunar- og hæfniskröfur
Þjónustulund, jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð almenn tölvukunnátta.
Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku/pólsku í ræðu og riti.
Bílpróf.
Þekking á vinnumarkaði, kjaramálum og reynsla af vinnumarkaðsmálum, þjónustu og samskiptum er kostur.
Umsækjendur sendi ferilsskrá og kynningarbréf á verks@verks.is
Hvetjum öll áhugasöm til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024. Frekari uppl. veitir Vignir S. Maríasson, formaður í síma 5889191 og netfang verks@verks.is
Umsóknarfrestur
05.05.2024
Starf nr.: 240418-04
Skráð á vefinn: 18.04.2024
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%