Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves
Innheimtufulltrúi
Lausar eru til umsóknar tvær stöður innheimtufulltrúa við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra á aðalskrifstofu á Blönduósi. Í boði eru áhugaverð og fjölbreytt störf innan stofnunar í stöðugri þróun. Störfin felast í fjölbreyttum verkefnum sem snúa m.a. að innheimtu sekta og sakarkostnaðar sem og annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Upplýsingagjöf í síma og tölvupósti við viðskiptavini og hagsmunaaðila
• Greining og úrvinnsla erinda viðskiptavina
• Úthringingar
• Eftirfylgni innheimtumála samkvæmt hlutverki innheimtumiðstöðvar
• Gerð greiðsluáætlana
• Auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins
Hæfniskröfur:
• Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi
• Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
• Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum
• Rík samstarfshæfni og geta til að vinna undir álagi
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjunar á því sviði
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að skrá sig í ræðu og riti
• Reynsla af innheimtustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi
Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknir er að finna á Starfatorgi.
https://island.is/starfatorg?institution=S%C3%BDsluma%C3%B0urinn+%C3%A1+Nor%C3%B0urlandi+vestra
Umsóknarfrestur
13.05.2024
Starf nr.: 240506-04
Skráð á vefinn: 06.05.2024
Stöðugildi: 2
Starfshlutfall: 100%