Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves

Innheimtufulltrúi

Laus er til umsóknar staða innheimtufulltrúa við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Starfsstöð er á Ísafirði. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. júlí eða fyrr sé þess kostur. Umsóknar frestur er til 13. maí 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Um er að ræða stöðu innheimtufulltrúa við innheimtusvið embættisins. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að mestu að innheimtu meðlags en að auki annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins.

• Upplýsingagjöf í síma og tölvupósti við viðskiptavini og hagsmunaaðila

• Greining og úrvinnsla erinda viðskiptavina

• Úthringingar

• Eftirfylgni innheimtumála samkvæmt hlutverki innheimtumiðstöðvar

• Gerð greiðsluáætlana

• Auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins

Hæfniskröfur:

• Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi

• Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur

• Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

• Hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum

• Rík samstarfshæfni og geta til að vinna undir álagi

• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi

• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum

• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að skrá sig í ræðu og riti

• Reynsla af innheimtustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi

Nánari upplýsingar og hlekk á umsóknir er að finna á Starfatorgi.

Umsóknarfrestur

15.05.2024

Starf nr.: 240506-03

Skráð á vefinn: 06.05.2024

Stöðugildi: 1

Starfshlutfall: 100%

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni