IceCom ehf. auglýsir eftir rafvirkja
IceCom ehf. starfar á sviðum tölvu/rafeinda tækninnar við uppsetningu rekstur og viðhald tölvu-net, sjónvarps og fjarskiptakerfa. Verkefnin eru fjölbreytt, og kerfin sem unnið er við margbreytileg. Fyrirtækið selur lausnir frá helstu framleiðendum á búnaði í þeim kerfum. Viðskiptavinir IceCom ehf. eru víða um land á mismunandi sviðum.
Um framtíðarstarf er að ræða, við vonumst eftir fróðleiksfúsum einstaklingi sem leitar að starfi þar sem nýjungar og framandi tækni eru spennandi verkefni.
Við leitum að rafvirkja með sveinspróf.
Tölvukunnátta er nauðsynleg, íslenskukunnátta nauðsynleg,
Við leggjum áherslu á heiðarleika, jákvæðni og fagmennsku.