Pósturinn leitar að bílstjórum með meirapróf í sumarstörf 2018.
Í boði eru störf sem eru annars vegar keyrsla á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar næturkeyrsla út á land.
Afleysingatímabilið er frá 15. maí til 15. september og æskilegt er að einstaklingar geti unnið sem mest á þessu tímabili.
Um er að ræða fjölbreytt störf við að sinna vöruflutningum, afhendingu pósts og annarra þjónustuvara. Í boði er vakta- og dagvinna.
Hæfniskröfur
- Meiraprófsréttindi (C).
- Réttindi til að keyra með tengivagn (CE) er kostur fyrir keyrslu á höfuðborgarsvæðinu.
- Réttindi til að keyra með tengivagn (CE) er skilyrði fyrir næturkeyrsluna.
- Mikil reynsla af akstri vöruflutningabifreiða er kostur.
- Íslenskukunnátta er æskileg.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Góða samskiptafærni.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2018. Tekið er á móti umsóknum í gegnum umsóknarvef Póstsins www.postur.is.
Pósturinn er með Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC og hvetur jafnt konur sem karla til sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir: Jón Ólafur Gestsson, deildarstjóri flutningamála, í netfangi jong@postur.is.