Gistiheimilið Gerði í Suðursveit óskar eftir að ráða starfsmann í móttöku frá mánaðamótum janúar/febrúar 2020.
Starfið felst í að:
- Taka á móti gestum
- Halda utan um bókanir
- o Svara tölupóstum
- o Sjá um bókunarkerfi
- Reikningagerð
- Sjá um daglega starfsemi á gistiheimilinu
- o Skipuleggja þrif á herbergjum og annarsstaðar
- o Panta vörur fyrir herbergi og bar
Vinnutími er yfirleitt frá kl. 7:30 - 17.
Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og vera góður í mannlegum samskiptum. Góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg. Húsnæði á staðnum. Upplýsingar í síma 846-0641 Björn. Laun samkvæmt kjarasamningum.
Aðrar upplýsingar
Gistiheimilið Gerði er staðsett 13 km fyrir austan Jökulsárlón á Breiðarmerkursandi og 67 km fyrir vestan Höfn í Hornafirði. Á gistiheimilinu eru 38 herbergi með sér baðherbergi og veitingastaður sem getur tekið allt að 80 manns.
Gistiheimilið rekur líka gistingu á Reynivöllum sem er 2,5 km fyrir vestan Gerði. Þar eru 3 sumarhús og eitt íbúðarhús með 7 herbergjum með sameiginlegu baði.