× Þessi auglýsing er útrunnin

Sumarstörf við vöruhúsaþjónustu - Vestmannaeyjar

Eimskip leitar að öflugum og ábyrgum einstaklingum til starfa í sumar við vöruhúsaþjónustu hjá Eimskip í Vestmannaeyjum.

Reglubundinn vinnutími er 08:00-16:30, alla virka daga. Viðkomandi þarf að hafa sveigjanleika til að geta unnið lengur ef þörf krefur.

Helstu verkefni eru frágangur og tiltekt pantana fyrir viðskiptavini Eimskips, merkingar, vörumóttaka og vöruafgreiðsla.

Hæfniskröfur:

  • Lyftararéttindi (j-réttindi) kostur
  • Almenn tölvukunnátta
  • Góð þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta og almenn enskukunnátta
  • Framtakssemi, stundvísi og almennt hreysti

Eingöngu er tekið á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum starf@eimskip.is.

Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2018.

Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.

Auglýsandi

Eimskip

Umsóknarfrestur til

26. apríl

Tekið við umsóknum á

Flokkar