Waldorfleikskólinn Ylur í Lækjarbotnum óskar eftir leikskólakennara í hlutastarf fyrir næsta skólaár.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu eða menntun í Waldorf uppeldisfræðum.
Ylur er staðsettur 10 km austur af Árbæ í fallegum dal með ævintýralegu umhverfi.
Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 2-16 ára barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolfs Steiner. Unnið er samkvæmt flatri stjórnun þar sem starfsmannaráð, sem allir fastráðnir starfsmenn eiga sæti í, ber ábyrgð á rekstri og innra starfi skólanna.
Umsóknarfrestur er til 20. maí og öllum umsóknum verður svarað eftir þann tíma. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á waldorfskolinn@waldorfskolinn.is
Auglýsandi
Waldorfskólinn Lækjarbotnum
Umsóknarfrestur til
20. maí