Hótel Búðir leitar að öflugum samstarfskrafti í stöðu vaktstjóra í sal. Laun eftir samkomulagi. Unnið er eftir 7 daga vöktum. Fæði og húsnæði hluti af kjörum samkvæmt samkomulagi.
STARFSSVIÐ
Umsjón með vakt. Skipulagning og samkipti vegna stærri viðburða í samstarfi við veitingastjóra. Fagleg framsetning og kennsla þjóna. Undir vaktstjóra starfa þjónar á vakt.
REYNSLA – MENNTUN
Reynsla af þjónastörfum skilyrði, menntun í greininni æskileg.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Vinsamlega sendið ferilskrá og umsókn til Daða Jørgenssonar, dadi@budir.is. Allar frekari upplýsingar fást hjá Daða í síma 892 7561 eða í tölvupósti; dadi@budir.is.
Aðrar upplýsingar
Hótel Búðir, stofnað 1948, er notalegt og sögufrægt hágæða 28 herbergja sveitahótel. Hótelið rekur margrómaðan veitingastað og er staðsett í einni af perlum náttúru Íslands við rætur Búðahrauns á Snæfellsnesi. Hótel Búðir er vinsæll áfangastaður ferðamanna, hvort heldur íslenskra eða erlendra gesta sem gera miklar kröfur um fyrsta flokks þjónustu hjá metnaðafullu starfsfólki.