× Þessi auglýsing er útrunnin

Stjórn ReykjavíkurAkademíunnar óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra

Framkvæmdastjóri hefur umsjón með starfsemi og málefnum ReykjavíkurAkademíunnar í umboði stjórnar.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á og annast fjármál, bæði vegna reksturs ReykjavíkurAkademíunnar og rannsóknarverkefna á hennar vegum, skrifstofuhald, skipulags- og húsnæðismál RA, kynningarmál og samstarf við stofnanir og fyrirtæki, rekstur tækja og miðlægs búnaðar og rekstur sameiginlegrar aðstöðu – og önnur mál sem stjórn felur honum. 

Helstu verkefni

  1. Stefnumótun RA í samvinnu við stjórn.
  2. Efling rannsókna á vegum RA.
  3. Umsjón með kynningarmálum.
  4. Umsjón með samningum RA við fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
  5. Rekstur og fjármálaumsýsla.
  6. Fjáröflun til starfsemi RA.
  7. Umsjón með funda- og ráðstefnuhaldi í samvinnu við stjórn og einstaka félaga.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða eða annað framhaldsnám frá háskóla.
  • Reynsla af stjórnun, fjármálum og rekstri.
  • Reynsla af rannsóknum og/eða utanumhaldi rannsóknarverkefna.
  • Þátttaka í viðburðastjórnun er kostur.
  • Faglegur metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð tungumálakunnátta.

 

Aðrar upplýsingar

Laun taka mið af gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Einnig fylgi náms- og starfsferilsskrá umsókninni. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2018.

Nánari upplýsingar veita Dr. Ingunn Ásdísardóttir, stjórnarformaður, (ingunn@akademia.is) í síma 869-8312 og Svandís Nína Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, (svandis.nina@akademia.is) í síma 772-5586.

Auglýsandi

ReykjavíkurAkademían Ses

Umsóknarfrestur til

1. september

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar