Aðstoðarmaður óskast/Assistant is needed
(English below)
Starfið, sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og NPA, felur í sér að aðstoða mig við ýmsar athafnir daglegs lífs, þar sem ég er hreyfihamlaður og hjólastólanotandi. Ég er búsettur í Reykjavík.
Hæfniskröfur:
Persónulegur aðstoðarmaður þarf að hafa góða færni í mannlegum samskiptum, traustur, ábyrgur í starfi, víðsýnn, jákvæður, heilsuhraustur, reyklaus, sveigjanlegur í starfi, stundvís, léttur í lund og eiga gott með að fara eftir leiðsögn.
Annað:
- Hlutastarf í vaktavinnu
- Hreint sakavottorð er skilyrði
- Ekki er gerð krafa um að umsækjendur hafi reynslu af því að vinna með fötluðu fólki
- Æskilegur aldur er 25-50 ára en ekki skilyrði