störf.is
S
Leita...
Auglýsa
Avatar

Síðufótur

Atvinnuleitendur

  • Atvinnuvaktin
  • Flokkar
  • Staðsetning

Fyrirtæki

  • Upplýsingar
  • Auglýsa

Störf.is

  • Hafa samband
  • Persónuverndarstefna
  • Notkunarskilmálar

© 2023 Störf.is - Vefun ehf - kt 620114-0650. Allur réttur áskilin.

Persónuverndarstefna

1. Almennt

Störf.is  leggur mikla áherslu á að vernda persónuupplýsingar notenda. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvernig við söfnum, notum og deilum upplýsingum um þig þegar þú heimsækir vefsíðuna eða notar þjónustu okkar. Öll vinnsla persónuupplýsingar fer fram í samræmi við persónuverndarlög á hverjum tíma.

2. Söfnun upplýsinga

Við söfnum eftirfarandi upplýsingum:

  • Upplýsingar sem þú gefur okkur: Þegar þú skráir þig á póstlista okkar (Atvinnuvaktin), þá geymum við upplýsingar um netfang og þau leitarskilyrði sem þú velur að vakta, í þeim tilgangi að geta sent þér upplýsingar um ný störf. Upplýsingarnar eru geymdar svo lengi sem þú velur að vera skráður í atvinnuvaktina, þú getur alltaf hætt áskrift að atvinnuvaktinni og verður upplýsingunum þá jafnframt eytt. Þegar þú skráir þig inn á vefsíðuna með netfangi, Google, Facebook eða LinkedIn aðgöngum, þá geymum við upplýsingar um netfang og það auðkenni (s.s. lykilorð) sem nauðsynlegt er til að geta framkvæmt innskráningu.
  • Upplýsingar sem við söfnum sjálfkrafa: Við notum Google Analytics til að fylgjast með umferð á vefsíðunni. Google Analytics safnar upplýsingum eins og IP-tölu, tegund vafra, tilvísunarsíður, landfræðileg staðsetning og samskipti notenda við vefsíðuna.
3. Notkun upplýsinga

Við notum upplýsingarnar sem við söfnum til að:

  • Veita og viðhalda þjónustu okkar
  • Bæta og sérsníða notendaupplifunina
  • Senda þér upplýsingar um ný störf sem passa við þín leitarskilyrði (ef þú hefur skráð þig í Atvinnuvaktina)
  • Greina notkun og þróa nýjar vörur og þjónustu
4. Deiling upplýsinga

Við deilum persónuupplýsingum þínum ekki með þriðja aðila nema:

  • Með þjónustuaðilum sem aðstoða okkur við að reka vefsíðuna og þjónustuna (svo sem Google Analytics).
  • Þegar það er krafist samkvæmt lögum eða til að vernda réttindi okkar
  • Með samþykki þínu
5. Vefkökur

Við notum vefkökur (e. cookies) til að greina notkun á vefnum, geyma upplýsingar um stillingar, innskráða notendur o.fl. til að bæta virkni vefsins. Þú getur stillt vafrann þinn til að hafna vefkökum, en það getur haft áhrif á virkni vefsíðunnar.

NafnTegundTilgangurGeymslutímiÚtgefandi
_ga*CookieNotað til að greina notkun á vefsíðunni (Google analytics)2 árGoogle
_gid*CookieNotað til að greina notkun á vefsíðunni (Google analytics)24 klstGoogle
_gat*CookieNotað til að takmarka fjölda beiðna (Google analytics)1 mínútaGoogle
localConsentCookieNotað til vista upplýsingar um samþykkiárStörf
c_userCookieNotað til vista upplýsingar um notanda30 dagarFacebook
next-auth.session-tokenCookieNotað til vista upplýsingar innskráðan notanda30 dagarStörf
next-auth.callback-urlCookieNotað til að vista upplýsingar um hvert skuli senda notanda eftir innskráninguSessionStörf
next-auth.csrf-tokenCookieNotað til að koma í veg fyrir krossfærsluárásir (CSRF)SessionStörf
ally-supports-chaceLocalstorageGeymir upplýsingar um stuðning vafraVaranlegtStörf
nextauth.messageLocalstorageGeymir upplýsingar um hve lengi innskráning er virkVaranlegtStörf
6. Öryggi

Við notumst við viðeigandi öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn óleyfilegum aðgangi, breytingum, birtingu eða eyðingu.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

  • Fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar um þig við kunnum að hafa á skrá.
  • Krefjast leiðréttingar á röngum eða ófullkomnum upplýsingum.
  • Krefjast eyðingar á persónuupplýsingum þínum
Vinsamlegast sendið póst á netfangið gdpr@storf.is ef þú vilt fá upplýsingar um persónuupplýsingar þínar eða krefjast eyðingar á þeim.
8. Tengiliðir

Ef þú hefur spurningar um þessa persónuverndarstefnu eða vinnslu okkar á persónuupplýsingum þínum, vinsamlegast hafðu samband við okkur á netfanginu: storf@storf.is

9. Breytingar á persónuverndarstefnu

Við gætum uppfært þessa persónuverndarstefnu af og til. Við munum tilkynna þér um allar breytingar með því að birta nýja persónuverndarstefnu á vefsíðunni okkar. Við hvetjum þig til að skoða þessa síðu reglulega til að vera upplýst/ur um hvernig við verndum persónuupplýsingar þínar.