Með því að nota og/eða skrá þig sem notanda á Störf.is
samþykkir þú að lúta eftirfarandi skilmálum.
Þú samþykkir að þær upplýsingar sem gefnar eru upp við skráningu á síðunni séu réttar.
Þú samþykkir að halda notendanafni og lykilorði þínu leyndu og vera ábyrg(ur) fyrir þeim upplýsingum sem þú skráir.
Þú samþykkir að upplýsa tafarlaust á netfangið storf@storf.is ef þú telur að óviðkomandi aðilar hafi komist yfir notendaupplýsingar þínar.
Þú samþykkir að vera persónulega ábyrg(ur) fyrir þeim upplýsingum sem þú birtir, undir hvaða flokki sem er, á vefsíðunni.
Þú samþykkir að með því að skrá þig sem notanda á Störf.is gefur þú heimild fyrir að geyma þær upplýsingar sem tengjast skráningunni.
Störf.is áskilur sér allan rétt til að fjarlægja efni og gögn af vefsíðunni sem ekki telst viðeigandi.
Störf.is ber undir engum kringumstæðum ábyrgð á fjárhagslegu eða andlegu tjóni sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna upplýsinga sem birtast á vefsíðunni eða tengsla sem myndast í kjölfar notkunar síðunnar.
Allt efni og viðmót á vefnum Störf.is er verndað af ákvæðum höfundalaga og er dreifing efnis og eintakagerð óheimil nema með samþykki stjórnar.