Leitað er að áreiðanlegum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, skipulagshæfni og getu til að starfa sjálfstætt og að vinna með öðrum.
Um er að ræða 50% starf. Ráðning er frá 1. maí 2026. Senda skal ferilskrá og kynningarbréf á netfangið akak@akak.is Umsóknarfrestur er til og með 18. mars nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með fjármálum AkureyrarAkademíunnar, daglegum rekstri og starfsemi
Útleiga á vinnuaðstöðu
Kynningarmál og umsjón með vefsíðu og samfélagsmiðlum
Öflun styrkja og verkefna
Skipulagning og umsjón með viðburðum
Umsjón með samningum AkureyrarAkademíunnar við einstaklinga, stofnanir og opinbera aðila
Samskipti og samstarf við almenning, fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og opinbera aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking á rannsókna- og fræðastörfum
Reynsla af verkefnastjórnun, fjármálum og rekstri
Góð tölvufærni og reynsla af því að vinna í rafrænu umhverfi
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Færni í Norðurlandamáli/öðrum tungumálum er kostur
Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna með öðrum
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri AkureyrarAkademíunnar, Aðalheiður Steingrímsdóttir, í síma 833-9861, og á netfanginu akak@akak.is
AkureyrarAkademían (AkAk) er rannsókna- og fræðasetur með aðsetur í verslunar- og þjónustumiðstöðinni við Sunnuhlíð 12, Akureyri. Starfsemi AkAk felst í að leigja einstaklingum aðstöðu til að vinna að sínum hugðarefnum og að miðla þekkingu til samfélagsins með því að bjóða almenningi upp á margvíslega viðburði, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Framkvæmdastjóri hefur umsjón með fjármálum, daglegum rekstri og starfsemi stofnunarinnar í umboði stjórnar. Vefsíða er akak.is
AkureyrarAkademían (AkAk) er rannsókna- og fræðasetur með aðsetur í verslunar- og þjónustumiðstöðinni við Sunnuhlíð 12, Akureyri. Starfsemi AkAk felst í að leigja einstaklingum aðstöðu til að vinna að sínum hugðarefnum og að miðla þekkingu til samfélagsins með því að bjóða almenningi upp á margvíslega viðburði, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra.