
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér bekkjarkennslu, foreldrasamstarf og þátttöku í starfsmannaráði.
Menntunar- og hæfniskröfur
æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og reynslu í Waldorfuppeldisfræðum,
leyfisbréf grunnskólakennara,
frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð,
hæfni og áhugi á uppeldis- og kennslufræði Waldorfstefnunnar,
góð færni í mannlegum samskiptum,
hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Fríðindi í starfi
starfsmenn skólans eru í fríu fæði á vinnutíma,
starfsmenn geta tekið skólarútu sér að kostnaðarlausu.
Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 3-16 ára barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolf Steiner. Jöfn áhersla er lögð á verklegt, listrænt og bóklegt nám.
Skólinn er staðsettur í Lækjarbotnum, 9 km fyrir austan Árbæ í yndislegri náttúru sem hefur skapandi og nærandi áhrif á börnin og starfsfólkið.