Vilt þú vera hluti af metnaðarfullum starfsmannahópi þar sem skapandi og fjölbreyttir kennsluhættir eru hafðir að leiðarljósi?
Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Lögð er áhersla á teymiskennslu/vinnu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.
Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.
Frekari upplýsingar gefur Birna Friðbjört S. Hannesdóttir, skólastjóri grunskóla Vestirbyggðar. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húsnæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið birna@vesturbyggd.is. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Leyfi til að nota starfsheitið kennari
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastigi
Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
Faglegur metnaður
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla s.s. Uppeldi til ábyrgðar, Heillaspor ofl.