Við á hjúkrunarheimilunum Grund og Mörk viljum bæta við þann góða hóp sjúkraliða sem er starfandi við heimilin.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem við leggjum mikla áherslu á góða teymisvinnu.
Leitað er eftir áhugasömum sjúkraliða með faglegan metnað, góða samskiptahæfni og jákvætt viðmót. Vinnutími og starfshlutfall eftir samkomulagi, dagvinna möguleg.
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
framhaldsnám æskilegt
Greitt er eftir kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Virðing, Vinátta og Vellíðan eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Sigrún Faulk hjúkrunarframkvæmdastjóri
mussa@grund.is 530 6100
Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri
tedda@grund.is 530 6100
Við hlökkum til að heyra frá þér !
Grundarheimilin saman standa af hjúkrunarheimilunum Grund, Mörk og Ás. Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Markmið Grundarheimilanna er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.