Við leitum að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi skólastjóra við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla í Grindavík. Um er að ræða einstakt og mikilvægt tækifæri til að leiða uppbyggingu skólastarfs í samfélagi sem hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum vegna náttúruhamfara.
Samrekinn leik- og grunnskóli byggir á traustum faglegum grunni og þeirri öflugu skólamenningu sem hefur einkennt leik- og grunnskólastarf í Grindavík um árabil. Markmiðið er að skapa styðjandi og framsækið námsumhverfi þar sem öryggi, farsæld, nám og þroski barna eru í forgrunni og samfella í námi og þjónustu við börn og fjölskyldur er tryggð.
Starfið býður uppá:
Tækifæri til að móta og þróa nýjan samrekinn leik- og grunnskóla
Tækifæri til að gegna einstöku og samfélagslega mikilvægu leiðtogahlutverki
Tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á framtíð barna og fjölskyldna í Grindavík
Er þetta starf fyrir þig? Endilega kynntu þér starfið, hæfni og ábyrgð á umsóknarvef Grindavíkurbæjar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Veita skólanum faglega forystu og leiða þróun nýs samrekins skóla á traustum grunni fyrra skólastarfs
Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
Stuðla að góðu samstarfi starfsfólks, nemenda, foreldra og nærsamfélags
Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
Stýra og þróa skólastarf í samræmi við lög, reglugerðir og aðalnámskrár
Efla jákvætt, öruggt og uppbyggilegt skólasamfélag
Hæfniskröfur:
Leyfisbréf til kennslu á leik- eða grunnskólastigi
Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
Farsæl reynsla af kennslu í leik- og/eða grunnskóla
Þekking á þeim lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem varða skólastarf
Leiðtogahæfni, skipulagshæfni, metnaður og styrkur til ákvarðana
Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Hæfni til að leiða faglegt starf í samfélagi í enduruppbyggingu
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti