Starf þjónustufulltrúa á Hreyfli
Hreyfill óskar eftir að ráða starfsfólk í vaktavinnu í þjónustuver. Starfið felst í þjónustu við viðskiptavini og bílstjóra, símsvörun og móttöku pantana. Leitað er að starfsfólki í hlutastarf.
Fyrirkomulag:
Viðkomandi þarf að geta unnið bæði á morgunvöktum frá 7-15 og kvöldvöktum frá 15-23. Einnig vantar á næturvaktir frá 23-7. Einnig vaktir um helgar.
Hlutastarf í afleysingum:
Afleysingar í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið kvöld- og næturvaktir, einnig helgarvaktir.
Hæfniskröfur:
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
* Aldurstakmark 20 ár
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið hentar vel með námi.
Þjónusta við viðskiptavini og bílstjóra Hreyfils