Eyjafjarðarsveit leitar að lausnamiðuðum og framsýnum leiðtoga í starf sem býður upp á spennandi tækifæri til að leiða sveitarfélagið í nánu samstarfi við kjörna fulltrúa, íbúa og starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
Stýrir og þróar stjórnsýslu sveitarfélagsins og hefur yfirumsjón með mannauðsmálum
Vinnur náið með sveitarstjórn og nefndum að undirbúningi mála og stefnumótun
Tryggir fagleg vinnubrögð, góða þjónustu og skilvirka framkvæmd
Annast samskipti við íbúa, stofnanir, fyrirtæki og önnur sveitarfélög og gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við
Leiðir samstarf og samráð innan samfélagsins
Hæfniskröfur
Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni, öguð og lausnarmiðuð vinnubrögð
Þekking og farsæl reynsla af stjórnun, mannauðsmálum, stefnumótun og rekstri
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Mjög góð færni í ræðu og riti
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, sérstaklega sveitarfélögum, er kostur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
Umsóknarfrestur er til klukkan 13:00 þann 3.júní
Umsókn skal send á esveit@esveit.is með yfirskriftinni „Sveitarstjóri – starfsumsókn“.
Umsókn skulu fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Nánari upplýsingar veita:
Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar hermann@esveit.is
Finnur Yngvi Kristinsson, fráfarandi sveitarstjóri sveitarstjori@esveit.is