Þessi auglýsing er útrunnin
OR og dótturfélögin Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur þjóna rúmlega 200.000 manns sem láta sig starfsemina varða og við eigum samskipti við með ýmsum hætti. Við leitum að manneskju til að taka þátt í samskiptum við fjölda hagsmunaaðila svo sem fjölmiðla, sveitarfélög, almannasamtök og vísindasamfélagið.
Meginhlutverk upplýsingafulltrúa verður að sinna upplýsingagjöf vegna starfsemi Veitna, dótturfélags OR. Auk þessa mun upplýsingafulltrúi taka þátt í að þróa rafræn samskipti og sjá um fundi og aðra atburði á vegum fyrirtækja innan OR samstæðunnar.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur og reynsla af miðlun upplýsinga til almennings mjög æskileg. Umsækjendur þurfa að hafa afburðavald á íslensku máli, góða kunnáttu í ensku, vera talnaglöggir og kunna góð skil á helstu samskiptaforritum. Vinnan krefst faglegrar framkomu og þjónustulundar.
Við bjóðum upp á krefjandi og skemmtileg verkefni og góða vinnuaðstöðu, mötuneyti og líkamsræktaraðstöðu. Við viljum vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, starfsþróun, jafnrétti og jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@or.is. Eingöngu er tekið á móti umsóknum á ráðningavef OR, starf.or.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2016.