Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til starfa á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar. Starfið felur í sér að sinna fjölbreyttum grunnrannsóknum á steinefnum sem notuð eru í vegagerð. Við leitum að manneskju sem er úrræðagóð, nákvæm og þrautseig. Vinnan getur verið líkamlega krefjandi við meðhöndlun á sýnum. Rannsóknarstofan fellur undir stoðdeild sem er á viðhalds- og þjónustusviði Vegagerðarinnar og starfa þar um 17 manns. Starfsstöðin er á höfuðborgarsvæðinu. Grunnrannsóknir á jarðefnum sem notuð eru í vegagerð. Framkvæmd efnis- og gæðaprófana. Skráning í rannsóknarkerfi Vegagerðarinnar. Umsjón með sýnum og viðhald tækjabúnaðar. Hluti starfsins felur í sér aðstoð við jarðtæknirannsóknir svo sem borun, jarðsjármælingar og veggreini. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Háskólamenntun svo sem jarðfræði er kostur eða BA/BS í raungreinum. Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður. Reynsla af teymisvinnu og góð hæfni til að vinna sjálfstætt skilyrði. Góð hæfni í mannlegum samskiptum. Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. Góð tölvufærni. Góð öryggisvitund. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Frekari upplýsingar um starfið Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 06.11.2026 Oddur Sigurðsson Hagalín forstöðumaður stoðdeildar Tölvupóstur: oddur.s.hagalin@vegagerdin.is Sími: 5221000 forstöðumaður stoðdeildar Þjónustuaðili Upplýsingar um starf Starf Starfsmaður á rannsóknarstofu Staðsetning Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall 100% Starf skráð 27.10.2026 Umsóknarfrestur 06.11.2026 Þjónustuflokkar Opinberir aðilar Stafrænt Ísland Samráðsgátt Reglugerðasafn Stjórnartíðindi Undirskriftalistar Háskólanám Framhaldsskólanám Starfatorg Styrkjatorg Ísland.is app Mínar síður Getum við aðstoðað? Persónuverndarstefna IS Notendaskilmálar